Jónsvaka – Ný og spennandi listahátíð í hjarta Reykjavíkur
Jónsvaka er ný listahátíð sem verður haldin í fyrsta sinn í miðbæ Reykjavíkur dagana 24. – 27. júní 2010. Hátíðin dregur nafn sitt af Jónsmessunótt sem er fimmtudaginn 24. júní, en hér á árum áður voru dagurinn fyrir Jónsmessu og Jónsmessunóttin sjálf nefnd einu nafni Jónsvaka.
Styrktaraðilar Jónsvöku
-english info below-
Jónsvaka er styrkt af Evrópu unga fólksins og Reykjavíkurborg og nýtur jafnframt stuðnings Rásar 2.
Sjálfboðaliðar óskast
-english info below-
Jónsvaka leitar nú að duglegum sjálfboðaliðum sem vilja taka þátt í hátíðarstörfum.
Miðasala hafin
-english info below-
Tónleikaveisla Jónsvöku fer fram á Nasa fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld (24.-26.júní).
Miðasala er nú hafin og fer hún fram á midi.is fram að hátíð og svo í Hinu Húsinu, Pósthússtræti, á meðan á hátíðinni stendur.
Listahátíðin Jónsvaka verður haldin í fyrsta skipti í miðbæ Reykjavíkur dagana 24. - 27. júní. Samhliða hinum ýmsu listviðburðum með ungt fólk í brennidepli verður boðið upp á þriggja daga tónleikadagskrá þar sem rjóminn af íslensku tónlistarlífi spreytir sig. Að framkvæmd og undirbúning hátíðarinnar standa m.a. Framkvæmdafélag listamanna, Patrón og Faxaflói.


Previous
